Jöklar eru um tíu prósent af þurrlendi jarðar. Jöklar eru aldrei kyrrir en þeir fara mis hratt. Jöklar skiptast í tvo flokka, hjarnjökla og skriðjökla. Stóru íslensku jöklarnir eru hjarnjöklar og af þeim ganga skriðjöklar. Skriðjöklar taka með sér allt sem þeir geta á vegi sínum. U-laga dalir, jökuldalir og grettisrök eru dæmi um afleiðingar jökla. Á Íslandi er mikið af jökulrofum. Á Vestfjörðum og á Norðurlandi er til dæmis mikið af djúpum þröngum firðum, U-laga dölum og grettistökum. Jökull fullur af grjóti og grjótmylsnu er eitt öflugasta rofafl náttúrunnar.