Vatn mótar yfirborð jarðar mest vegna þess að það endurnýjast alltaf. Úrkoman sem fellur á fjöllin myndar læki og stækkar alltaf þangað til vatnið fer í sjóinn. Þegar lækurinn stækkar brýtur hann niður jörðina næst honum. Ef straumhraði vatnsins er mikill ber það mikið af lausu efni með sér en ef hann er lítill myndast set. Sjór hefur líka mikil áhrif á mótun jarðar út af sjávarföllum.